Langar að vera þessi...

... allavega prófa það sen hann er að gera þarna Woundering

 

 


Mér finnst...

... að það ætti að banna táfýlu. Mér finnst táfýla vera dónalegasta lykt í heimi. Prumpulykt er fyndin en táfýla er pjakk Sick
mbl.is Bannað að leysa vind innandyra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá hvað var gaman

Fór líka síðast þegar hann kom og mun pottþétt fara næst. Ég skemmti mér aldrei eins vel og á tónleikum og þessir voru í topp 10. Er búin að vera að hita mig upp í nokkra daga (er reyndar alltaf að hita mig upp ef út í það er farið Wink ) og hann tók mörg uppáhalds laganna minna. Þetta söng hann sérstaklega fyrir mig.
mbl.is Kim Larsen hélt uppi fjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirbúningsvinna...

... aþþí ég er að fara út að borða. Það er nebblega heilmikið fyrirtæki að fara út að borða með vinnufélögunum. Mar þarf sko að vera sætari en mar var fyrr um daginn í vinnunni. Ætti kannski að fara bara út með maskann sem ég smurði í smettið á mér fyrir nákvæmlega 7 mínútum. Ég er gordjöss með maska Joyful

Neeei, fólk heldur kannski að ég sé skrítin og það vil ég ekki.  Klíni bara einhverju í andlitið, fer í skárri fötin og hristi hausinn. Þá er ég orðin fín...

Ok þetta er orðið gott,,, mig vantaði eitthvað að gera á meðan maskinn vann vinnuna sína. Korterið er liðið og ekki vinnur hann yfirvinnu.

Farin að skola... bleble Whistling


Andvarp

Ég er lengi búin að leita af lagi. Mundi ekki hvað það hét. Er búin að vera með höfuðið í bleyti nokkrum sinnum á dag í laaaaangan tíma. Ekkert gekk. Spurði nokkra með úúúinu sem var það eina sem ég mundi ú laginu. Spurði meira að segja tvo mestu Stones aðdáendur sem ég þekki. Ekkert gekk. Svo bara alltíeinu fann ég það LoL

Nú er ég glöð og hlusta á lagið aftur og aftur Tounge


Frí

Ég var í fríi í dag. Er reyndar búin að fara 2svar niður í vinnu í dag en er samt í fríi,,, ekki misskilja þetta Woundering. Ég fór með mömmu í bæinn og byrjaði á jólagjöfunum. Bara gaman. Komst loksins í langþráð jólaskap. Ég er yfirleitt langt á undan öðrum að komast í jólaskap en þetta árið hefur bara ekkert verið að gerast, er því mikið fegin að hafa farið í bæinn.

Núna er ég að fara að hlusta á jólalög og þrífa Joyful


Hmmm...

Ætli ég fái hann í jólagjöf?? Alveg spurning sko. Veit reyndar ekki hvað ég mundi gera við hann en ég gæti alveg áreiðanlega gert eitthvað gagnlegt við svona huggulegann demant Whistling
mbl.is Dýr demantur seldur á uppboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullt að gera...

... og bara gaman. Er að koma mér inn í nýtt starf og er bara spennt. Ég fékk stöðuna sem ég sótti um og tek við henni 1. desember. Lífið er skemmtilegt og ég nýt mín í botn. Pínu stressuð en aðallega spennt. Svo eru að koma jól og ég er aðeins byrjuð,,, komin upp einhver ljós og ég verð svona að smá dúlla mér í þessu fram að jólum.

 

Hey úúú,,, fékk mér nýjan sófa í Settinu. Drappaður hornsófi. Allir velkomnir í heimsókn að máta. Hann er æði, nettur og sætur og smellpassar í litlu sætu stofuna mína LoL

 

Farin að sofa,,, vinna á morgun.

Bleble, Oddrúnin. 


Léleg

Ég er allt annað en dugleg að blogga á þessari síðu. Er að fara í þrítugs afmæli hjá Ingvari á morgun,,, hef kannski frá einhverju skemmtilegu að segja eftir það Whistling

Yoko Ono

Yoko Ono er pönkari. Ég fíla hana í tætlur. Hún er búin að gera fullt af athyglisverðum hlutum og mér finnst alltaf jafn gaman að fylgjast með henni. Uppáhalds lögin mín með henni eru Don't worry Kyoko og Walking on thin ice .


mbl.is Ein friðarsúla nægir Yoko Ono
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Oddrúnin

Höfundur

Oddrún
Oddrún
Jammm. Hér er ég.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Siggi obbolega alfarlegur með húfuna góðu
  • Oddrún og Soffía að krumpast
  • Soffía að krumpast
  • Oddrúnin að bíða eftir matnum
  • Ísak að krumpast með húfuna

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 298

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband